Hálsakots Little Miss Surprise •"Lotta" IS06699/02
Loksins, eftir fjórtán ára bið
Í eigu Englakotsræktunar .
Frí af augnsjúkdóm PRA. Litur. Þrílit. Fædd 25. apríl 2002, 180. gr.
 Lotta (Hálsakots Little Miss Surprise), er hreinræktuð Papillon tík .Lotta er undan Pippí og Zæta sem var hér í heimsókn tímabundið frá Danmörku.
Það verður ekki annað sagt um Lottu, en að hún sé hugljúf og dásamleg í senn, með einstaka skapgerð og ástríkt viðmót.
Englakots Elvis •"Simbi" IS09468/06
Hann kom fyrstur og var minnstur...
Eigandi: Inga Birna Erlingsdóttir
Litur. Rauð Sable / Hvítur. Fæddur 15. desember 2005, 132. gr.

Mikið ósköp fannst mér hann lítill, fyrsti hvolpurinn í gotinu. Lítið kríli sem lét ekkert í sér heyra þegar hann kom í heiminn. Jóna, sú ljósmæðranna sem var mætt á staðinn (ásamt mér mömmunni auðvitað), beitti nú öllum brellum sem hún hafði lært og fékk krílið til að muldra eitthvað svo við urðum sáttar. Hann var bara svona hæverskur, vildi ekki láta hafa neitt fyrir sér.
Vara bara svona feiminn, allavega svona fyrsta daginn...
Englakots Enya • IS09465/06
Stelpan í strákahópnum
Í eigu Englakotsræktunar Frí af augnsjúkdóm PRA. Litur. Rauð Sable / Hvítur. Fædd 15. desember 2005, 158. gr.

Dásamlega ljúf, skapgóð og kelin, lærdómsfús og glaðleg. Hún fæddist önnur í röðinni, næst á eftir Simba. Ég hafði eiginlega vonast eftir stelpu, svo þetta var einkar gleðilegt, þótt maður hugsi jú auðvitað fyrst um heilbrigðið og allt svoleiðis. En stelpan var allavega komin í heiminn. Aldrei að vita nema þær verði fleiri, hugsaði ég. Mér varð ekki að ósk minni. Hinir tveir hvolparnir sem á eftir komu, voru báðir strákar. Litla stelpan okkar dafnar vel, reyndar svo vel að hún vill helst sofa inn í eldhúsi, við matarskálina. Vill helst borða leifarnar eftir systkinin sín.
Englakots Enrico •"Ríkó" IS09466/06
var kallaður Hulk, en heitir nú Enrico
Eigandi: Steinunn Árnadóttir Litur. Rauð Sable / Hvítur. Fæddur 15. desember 2005, 192. gr.
 Það má eiginlega segja það að hann hafi fengið nafnið Hulk, strax við fæðinguna. Hann var svo stór, að okkur ljósmæðrunum fannst nóg um (alla vega fannst mér hann stór, miðað við þá sem á undan höfðu komið). Það kom svo á daginn að Hulk, - hinn stóri, stækkaði mest og varð strax eins og Golíat, bar höfuð og herðar yfir systkini sín. Hann hafði sérstaka skapgerð, svona fyrstu vikurnar. Vildi helst vera einn í sínu horni, hugsa og spá í tilveruna í kringum sig.
Englakots Eros • IS09467/06
Það er kominn strákur...
Eigandi: Inga Birna Erlingsdóttir Litur. Rauð Sable / Hvítur. Fæddur 15. desember 2005, 192. gr.
 Mér létti þegar síðasti hvolpurinn kom í heiminn. Nú var langt ferli á enda. Spennufall og ánægja. Gleðin tók nú völdin, þótt ég væri þreytt og ánægð með allt sem á undan hafði gengið. Hún Lotta mín, mamman sem allt snérist um, hafði notið athygli minnar og umhyggju alla meðgönguna. Nú var allt á enda og fæðingunni lokið. Strákurinn var stæltur og stæðilegur, við kölluðum hann King Kong, svona eins og Disney...eða þannig. Myndarlegur strákur hafði bæst í hópinn. Hann var skoðaður hátt og lágt, og auðvitað vorum við hæstánægð. Hvað annað, allir normal og vel skapaðir.
Candygolds Expectation • "Míró" IS09966/06
Míró töffari kom frá Svíþjóð
Í eigu Englakotsræktunar
Frír af augnsjúkdóm PRA. Litur. Dökk Sable / Hvítur. Fæddur 24. mars 2006
Smella á meira til að sjá ættbók
Englakots Carmen • IS10855/07
Rólega dúllan mín
Í eigu Englakotsræktunar
Frí af augnsjúkdóm PRA. Litur. Dökk Sable / Hvítur. Fædd 29. apríl 2007, 99 gr.
Smella á meira til að sjá ættbók
Englakots Camilla • IS10852/07
Rauðbrúna stelpan í gotinu
Eigandi: Þórey Ólafsdóttir
Litur. Rauð Sable / Hvítur. Fædd 29. apríl 2007, 120 gr.
Smella á meira til að sjá ættbók
Englakots Cleopatra • IS10854/07
Yndislegur fjörkálfur
Eigandi: Agatha Guðmundsd.
Litur. Dökk Sable / Hvít.
Fædd. 29. apríl 2007, 114. gr.
Smella á meira til að sjá ættbók
Englakots Chantalle • "Birta" IS10853/07
Lík Lottu mömmu sinni
Eigandi: Sigríður Pálsdóttir
Frí af augnsjúkdóm PRA. Litur. Dökk Sable / Hvítur. Fædd 29. apríl 2007, 118 gr.
Smella á meira til að sjá ættbók
Englakots Casanova • IS10850/07
Flotti einfarinn
Eigandi: Berglind Marinósdóttir
Litur. Dökk Sable / Hvítur. Fæddur 29. apríl 2007, 128 gr.
Smella á meira til að sjá ættbók
Englakots Carmelo • "Fródó" IS10851/07
Hann varð fljótt töffari
Eigandi: Margrét Magnúsdóttir
Frír af augnsjúkdóm PRA. Litur. Dökk Sable / Hvítur. Fæddur 29. apríl 2007, 116 gr.
Smella á meira til að sjá ættbók
Englakots Caruso • "Hugo" IS10849/07
Hann var kallaður litla beauty face
Eigandi: Dagný Árnadóttir
Litur. Dökk Sable / Hvítur. Fæddur 29. apríl 2007, 97 gr.
Smella á meira til að sjá ættbók
Hálsakots I´M Your Angel Dream • "Akira" IS11905/08
Hún fæddist ponsulítil dúlla
Í eigu Englakotsræktunar. Meðeigandi, Agatha Sif Guðmundsdóttir
Frí af augnsjúkdóm PRA. Litur. Þrílit. Fædd 15. febrúar 2008, ? gr.
Smella á meira til að sjá ættbók
Englakots Angel of Beauty •"Ashley" IS12602/08
Eigandi: Englakotsræktun og Dagný Árnadóttir.
Litur. Hvítur/Dökk Sable. Fædd 17. ágúst 2008, 170 gr.
Smella á meira til að sjá ættbók
Englakots Angel of Love • "Picasso" IS12603/08
Eigandi: Englakotsræktun og Dagný Árnadóttir
Frír af augnsjúkdóm PRA..Litur. Hvítur/svartur. Fæddur 17. ágúst 2008, 190 gr.
Smella á meira til að sjá ættbók
Englakots Angel of Kindness • "Moli" IS00000/09
Eigandi: Þórunn Gunnarsdóttir
Litur. Hvítur/Svartur. Fæddur 19. ágúst 2009, 162 gr.
Smella á meira til að sjá ættbók
Englakots Angel of Happiness • "Máni" IS00000/09
Eigandi: Guðný S. Magnúsdóttir
Litur. Hvítur/Sable. Fædd 19. ágúst 2009, 204 gr.
Smella á meira til að sjá ættbók
Englakots Angel of Freedom • "Jasmín" IS00000/09
Eigandi: Englakotsræktun og Katrín Blöndal
Litur. Hvít/Dökk Sable. Fædd 19. ágúst 2009, 188 gr.
Smella á meira til að sjá ættbók
Englakots Wings of Angel "Kasper" • IS15260/10
|