Lotta

»  Hundarnir  »  Englakots Enrico •"Ríkó" IS09466/06


Englakots Enrico •"Ríkó" IS09466/06
var kallaður Hulk, en heitir nú Enrico

Eigandi: Steinunn Árnadóttir Litur. Rauð Sable / Hvítur. Fæddur 15. desember 2005, 192. gr.

Það má eiginlega segja það að hann hafi fengið nafnið Hulk, strax við fæðinguna. Hann var svo stór, að okkur ljósmæðrunum fannst nóg um (alla vega fannst mér hann stór, miðað við þá sem á undan höfðu komið). Það kom svo á daginn að Hulk, - hinn stóri, stækkaði mest og varð strax eins og Golíat, bar höfuð og herðar yfir systkini sín. Hann hafði sérstaka skapgerð, svona fyrstu vikurnar. Vildi helst vera einn í sínu horni, hugsa og spá í tilveruna í kringum sig.

Þegar kom að matmálstíma, var sko aldeilis komið að honum að sjúga spenann og það helst fleiri en einn. Honum gekk svo mikið til að hinir hvolparnir máttu forða sér, til að verða ekki undir þeim stóra. Hann vildi fá sitt, aðrir máttu bara fara aftar í röðina.

Ég skrifaði hjá mér þyngdina á hvolpunum, daglega í 8 vikur, og ég segi það hér og nú, mér fannst eins og viktin væri biluð. Hann bara bætti við sig og bætti við sig – endalaust. Vissulega þyngdust hinir en hann Hulk minn, sló þeim við á hverjum degi. Átti alltaf metið í þyngdaraukningu, eins og hann væri hreinlega á sterum, svo mikill var ákafinn. Fljótlega fór þessi stóri fallegi hundur að verða mjúkur að utan sem innan, hann fór að kyssa mann og kela eins og hann hefði aldrei gert annað. Hulk varð nú hvers manns hugljúfi og bræddi hvern þann sem kom í heimsókn. Hann var jafn elskulegur og sætur eins og hann var stór. Hreinlega frábær hundur sem fékk strax mikið rými í hjörtum okkar.

Enrico hinn ljúfi og fallegi, hefur nú fengið framtíðarheimili hjá Steinunni Árnadóttur og fjölskyldu í Seljahverfinu, þar sem honum líkar vel, glaður og ánægður


Faðir:
Emira's Bobbie James
IS06998/03

F.Faðir
Emira's Ufano of Offside
Vittoria's Offside
S16308/94
DKCH INTCH
Emira's Pimpinella of Zæta
DK05364/95
F.Móðir
Emira's Rebelle of Chesterfield
DK24558/96

EUJSG
Gold Wings Chesterfield Coctail
DK00437/92

Coquette Deux V.D.Johannieterhof
DK07143/96
Móðir:
Hálsakots Little Miss Surprise
IS06699/02
HD:
M.Faðir
Lullans Zæta
IS06611/02
SUCH
Lullans Misterascot
S13927/82
Lullans Water-Lily
S61485/90
M.Móðir:
Tópasar-Double Joy
IS05344/99
ISCH
Blackpark Just Gordons
IS03051/94
Lordsrake Undaunted
IS04390/97





Englakots, Papillon hundaræktun | Ásdís Bjarnadóttir | englakot.is | 821 1101
senda mér póst | © Copyright | vefhönnun: www.anna.is



Hundarnir
www.englakot.is www.englakot.is