Englakots Enya • IS09465/06
Stelpan í strákahópnum
Í eigu Englakotsræktunar Frí af augnsjúkdóm PRA. Litur. Rauð Sable / Hvítur. Fædd 15. desember 2005, 158. gr.

Dásamlega ljúf, skapgóð og kelin, lærdómsfús og glaðleg. Hún fæddist önnur í röðinni, næst á eftir Simba. Ég hafði eiginlega vonast eftir stelpu, svo þetta var einkar gleðilegt, þótt maður hugsi jú auðvitað fyrst um heilbrigðið og allt svoleiðis. En stelpan var allavega komin í heiminn. Aldrei að vita nema þær verði fleiri, hugsaði ég. Mér varð ekki að ósk minni. Hinir tveir hvolparnir sem á eftir komu, voru báðir strákar. Litla stelpan okkar dafnar vel, reyndar svo vel að hún vill helst sofa inn í eldhúsi, við matarskálina. Vill helst borða leifarnar eftir systkinin sín.
Ég (mamman í eldhúsinu), sé til þess að hún borði bara hæfilega og safni ekki á sig óþarfa keppum. Finnst hún vera orðin búsældarleg, en það gerir ekki svo mikið til á þessum aldri. Er 3ja mánaða frá 15. desember. Enya er fjörkálfur sem finnst gaman að leika sér og hlaupa um. Það er sjaldnast meira fjör en þegar hvolparnir eru í eltingarleik, hlaupandi um með tilheyrandi gelti og tísti á miklum hraða úr einu herberginu í annað, og sá fyrsti í röðinni með leikfang eða bein í kjammanum. Ég vona að hún Enya mín horfi til Lottu mömmu sinnar og taki upp eftir henni ýmsa fínlega, dömulega takta. Innst inni held ég að á því sé enginn vafi, hún minnir svo mikið á mömmu sína á þessum aldri.
Faðir:
Emira's Bobbie James
IS06998/03
|
F.Faðir
Emira's Ufano of Offside
|
Vittoria's Offside
S16308/94 |
DKCH INTCH
Emira's Pimpinella of Zæta
DK05364/95 |
F.Móðir
Emira's Rebelle of Chesterfield
DK24558/96 |
EUJSG
Gold Wings Chesterfield Coctail
DK00437/92
|
Coquette Deux V.D.Johannieterhof
DK07143/96 |
Móðir:
Hálsakots Little Miss Surprise
IS06699/02
HD: |
M.Faðir
Lullans Zæta
IS06611/02
|
SUCH
Lullans Misterascot
S13927/82 |
Lullans Water-Lily
S61485/90 |
M.Móðir:
Tópasar-Double Joy
IS05344/99 |
ISCH
Blackpark Just Gordons
IS03051/94 |
Lordsrake Undaunted
IS04390/97 |
|