Hálsakots Little Miss Surprise •"Lotta" IS06699/02
Loksins, eftir fjórtán ára bið
Í eigu Englakotsræktunar .
Frí af augnsjúkdóm PRA. Litur. Þrílit. Fædd 25. apríl 2002, 180. gr.

Lotta (Hálsakots Little Miss Surprise), er hreinræktuð Papillon tík .Lotta er undan Pippí og Zæta sem var hér í heimsókn tímabundið frá Danmörku.
Það verður ekki annað sagt um Lottu, en að hún sé hugljúf og dásamleg í senn, með einstaka skapgerð og ástríkt viðmót.
Lotta fæddist þann 25. apríl árið 2002 og við fengum hana til okkar á miðju sumri; þann 3. júlí. Auðvitað tóku við nokkrar vikur við að húsvenja stelpuna, en það gleymdist fljótt, hún var svo skemmtileg og gefandi.
Lotta er dugnaðarstelpa, þótt henni finnist ekkert smá gott að liggja í sólbaði, helst á besta stað – þegar hún slappar af og safnar kröftum. Útivist og gönguferðir eru í sérstöku uppáhaldi, og svo hefur hún gaman af því að hlaupa um frjáls eins og fuglinn inn á milli trjánna, helst í háu grasi og innan um þúfur og villtan gróður. Hún kann að meta íslenska fjallaloftið, hún veit varla nokkuð betra, það lætur hún bersýnilega í ljós þegar hún nálgast kunnuglega staði í sveitinni.
Barngóð er hún Lotta, þótt hún verði nú aldrei nein Aupair! Innan um börn er hún með sitt jafnaðargeð og lætur ekkert koma sér á óvart. Hún er vör um sig og lætur yngri börn aldrei taka sig í fangið eða lyfta sér upp! Hún hefur vit á því að forðast hætturnar! Eins og hundum er lagið, þá heilsar Lotta gestum í forstofunni, ekki með neinum látum, heldur á sinn „hæverska“ hátt með kossum og faðmlagi...hún heilsar með stæl eftir að dyrabjallan hefur vakið hana frá kúrinu og sagt henni að nú sé tími til að heilsa. Það er eitthvað seiðmagnað við dyrabjölluna, það er sama hvað hún er að gera, alltaf er það bjallan sem hefur vinninginn og fangar athyglina svona gjörsamlega.
Lotta er lærdómsfús, fljót að læra og bæði hlýðin og eftirtektarsöm. Hef enn ekki lesið Laxness fyrir hana, en aldrei að vita hversu menningarlegar við mæðgur getum orðið, svona í framtíðinni, þegar árin færast yfir.
Faðir:
Lullans Zæta
IS06611/02
HD: |
F.Faðir
SUCH
Lullans Misterascot
S13927/82
|
Nouvean Crown Prince
S62844/81 |
La Rocca´s MissJasmin
S14879/81 |
F.Móðir
Lullans Water-Lily
S61485/90 |
SUCH NUCH
Beddi´s Adamant Alexander
S63728/88 |
Nanic´s Anniette
S55295/88 |
Móðir:
Tópasar - Double Joy
IS05344/99
HD: |
M.Faðir
ISCH
Blackpark Just Gordons
IS03051/94
|
CH
Blackpark Gordon´s
0775BZ |
CH
Blackpark Camio
01388V |
M.Móðir:
Lordsrake Undaunted
IS04390/97 |
Lordsrake Oppurtunity
3896BY |
Lordsrake So Be It
R2849202R03 |
|